Vitleysingur
Þá eru 2 vikur komnar síðan ég hætti að taka í vör. 10 dagar án alls nikótíns. Þetta gengur bara vel. Fór á fyllerí um helgina og tók engin feilspor. Allavega ekki hvað varðar tóbakið. Var vel fullur og fór í skemmtistaðasleik við einhverja píu á B5 sem ég hef aldrei séð áður og man ekkert hvað heitir. Örugglega einhver algjör hóra.
Tilefnið djammsins var langþráður Íþróttanefndarendurfundur. Þar sem helmingurinn af nefndinni er búsettur erlendis voru það ég, Kiddi og Sölvi sem mættum og drukkum saman. Gríðarlega gott kvöld. Nauðsynlegt að ræða mikilvæg mál með bjór til að væta kverkarnar.

(2. hæð) Ásgeir, Kiddi, Krummi (1. hæð) Sölvi, Ingibjörg og Óli Péééé
Það er búið að vera töluvert mikið um hreyfingu síðustu vikurnar. Held ég sé að slaga í 7 skipti í viku. Mjölnir, fúz, basket og ræktin. Hentar ágætlega þar sem maður er alltaf að fá sér harðfisk, skyr, egg, tyggjó eða banana þegar mann langar í lummu. Amma Díana hefur sagt mér söguna af því þegar hún hætti að reykja svona nokkurnveginn í hvert einasta skipti sem ég kíki í heimsókn til hennar og Afa Jóns.
Sagan er í stuttu máli sú að Amma hætti að reykja heillengi og þá þyngdist hún um 20-25 kíló. Svo byrjaði hún aftur að reykja og þá hrundu af henni kílóin. Eða mig minnir það. Þau bættust allavega á hana þegar hún hætti að reykja. Ég er því líklega dæmdur til þess, fyrst ég er hættur, að þyngjast um svona 20-25 kg af vöðvum. Ó, nei.
Partur af því prógrammi er að æfa í Mjölni og að drekka Hámark. Flestir strákar kannast við aukaverkanir próteins. Ég var að glíma við einhvern gaur í síðustu viku og var í guard position.

Ég var eins og gaurinn sem er undir á myndinni
Semsagt, ég ætlaði að vera hrikalega sniðugur og slamma gaurnum á hliðina með fótunum á mér. En þegar ég gerði það og hann streittist á móti þá kom áreynsla og ég prumpaði alveg frekar mikið á gaurinn.
Ekki að það sé neinn sérstakur partur í því að þyngjast um 20-25 kg af vöðvum. Fannst þetta bara frekar fyndinn hlutur til að lenda í. Kjánalegt. Gaurinn var alveg pollrólegur. "Jájá, þetta gerist maður". Svo bara áfram að glíma. Heyrði einhverntímann að þessir kraftlyftingargaurar væru stundum að skíta í buxurnar á mótum og væru því með bleyju oftar en ekki. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Ekki að það sé neitt markmið.
Fyrir utan æfingar er búið að vera fínt fjölskyldulíf hérna í íbúðinni.

Á þriðjudaginn var vídjókvöld þar sem ég, Pálmar, Sif og Ingunn tékkuðum á mynd sem að Sif sagði að væri alveg geðveik. Myndin heitir Death Ship og er hrollvekja frá 1980. Tagline myndarinnar er:
"Those who survive the ghost ship are better off dead".
Hverju orði sannara. Mæli ekki með þessari mynd.
Hún var in fact það léleg að þrátt fyrir að það hafi verið vinnukvöld þá vildi ég ekki fara að sofa eftir slík vonbrigði og við horfðum á korter af Nightmare on Elm Street og síðan alla Insidious á eftir. Vídjókvöldið var rosalega fínt samt sem áður, náðum alveg að hlæja svolítið af þessum gríðarlega grófu morðatriðum í Death Ship. Þetta var svona svipuð mynd og Final Destination, nema að atriðin þar sem fólk dó voru alveg vonlaust léleg. T.d. gaur sem var hífður með kaðli af bátnum upp í loftið og svo hent í sjóinn þar sem hann drukknaði bara án þess að neinn reyndi að bjarga honum. Alveg virkilega lame en mjög fyndið.
Á fimmtudaginn var síðan spilakvöld. Ég, Pálmar og Erik spiluðum á móti fjórum fræknum fjölskyldugarðsstelpum í Trivial Pursuit.
Eftir mjög óspennandi byrjun og miðju þá kom spennandi lokakafli þar sem við strákarnir stálum sigrinum. Frekar ljúft. Ég held satt að segja að Pálmar hafi bætt metið sitt í nammi-, snakk- og súkkulaðiframboði þetta kvöld. Hann er höfðingi heim að sækja þessi maður. Þar af leiðandi er ég líka höfðingi heim að sækja. Enda er vinsælt að sækja okkur heim.
Annars þá er maður búinn að vera frekar ofvirkur. Bjarki kíkti í kringluleiðangur með mér og horfði á Moneyball á laugardaginn í þynnkunni. Moneyball er bara alveg frekar fín. Kannski ekki alveg geðveik, en góð samt. Pitt mjög fyndinn í henni. Held ég hafi í fyrsta skipti á ævinni farið í ræktina daginn eftir fyllerí á laugardagskvöldið. Fór í Laugar. Held ég haldi bara áfram að fara á Nesið eða í Hfj. Það er svona temmilegt douchebag vibe í Laugum.
Ég fór edrú í teiti hjá Valgerði, kærustu Tóta Hauks, og rúntaði í gegnum bæinn með Bjarna Þór eftir á. Ótrúlega lítið um hözzl hjá mér og Bjarna í partýinu hjá Tóta og enn minna um slagsmál í bænum þegar við vorum að rúnta. Bömmer. Eldaði svo mat og tékkaði á spænskri hrollvekju með vinkonu á sunnudaginn sem heitir Tesis. Mynd sem gleymist bráðlega. Upplistun lokið.
En hérna er annars myndband sem lýsir því hversu glaður ég er að eiga Subaru Impreza 4WD. Mögulega er ég líka að koma upp um ólöglegan dekkjagang hjá Pelmz.
later
