Round 2.
Tónlistarmaður sagði að lífið væri ljúfsár sinfónía einu sinni. Hann gerði lag um það. Lagið hans fór á toppinn út um allt. Seinna var hann kærður fyrir að stela undirspilinu í laginu því það tilheyrði öðrum tónlistarmanni. Hann stóð uppi með frábært lag sem hann gerði en fékk í raun ekki að eiga neitt af því sem lagið gaf af sér. Hann átti ekki nóg í laginu til þess. Ofan á það hlýtur hann að hafa orðið skömmustulegur fyrst það var sannað að hann hafi stolið frá öðrum.
Það er ekki lagið í þessari færslu sem ég er að tala um. Finnst þetta lag rosalega gott samt. Það var Bittersweet Symphony með The Verve sem gekk í gegnum þetta vesen allt saman. Minnir að þetta hafi verið eina markverða lagið sem þeir gerðu saman. Gott run í stuttan tíma. Hef ekki heyrt um þá í langan tíma.
later
