Fínasti dagur

Verð að segja eins og er. Dagurinn í dag var alveg ágætur þrátt fyrir hlutina sem ég banna mér að gera. Hámark í morgunmat heima, hafragrautur í vinnunni, ræktin í hádeginu og síðan sund með Jón Óla eftir vinnu.

Klukkan 13.30 í dag gat ég líka sett fyrsta strikið á töfluna í herberginu hjá Jón Óla, Hildi og Kristínu. Þau ætla að gefa mér 1 bjór á mann ef mér tekst að setja 28 strik á töfluna. Vonandi tekst það. Hvert strik þýðir sólarhringur án þess að nota tóbak. 1 down. 13 klukkutímar í næsta. Mögulega verða Muriel og Stebbi líka í bjórgjafarhópnum. Það er auðvitað ónauðsynlegt og algjört aukaatriði það sem þetta snýr eingöngu að mér, en ég kann að meta stuðninginn. Hildur Hrefna er góð gella. En þetta er verðugt verkefni, fyrsti dagurinn var ekki ómögulegur. Er þó að nota smá nikótíntyggjó sem ég ætla að losa úr ferlinu hratt. Nýleg reynsla hefur þó sýnt að það getur tekið meira en einn dag að venja sig af einhverju.

Eftir sundið sótti ég ömmu Sjöfn og fór í mat heima hjá mömmu og pabba. Elsku mamma mín er orðin 50 ára gömul, en lítur að sjálfsögðu ekki út fyrir að vera ári eldri en 35 ára!

Góður kjúklingaréttur, eftirréttur og gott tjill með afa Jón, ömmu Díönu, ömmu Sjöfn, mömmu, pabba, Írisi systu, Stebba fósturpabba og Signhildi fósturmömmu. Umræðurnar voru komnar út í hálfgerðan meting um það hver gat sagt bestu söguna af föstum bílum í óveðri. Það var einmitt óveður þar sem Díana systir og amma Sjöfn urðu nánast úti daginn sem ég fæddist. Voru að lenda á Íslandi, nýkomnar frá Danmörku þar sem ég var að fæðast og var keyrt áleiðis heim af björgunarsveitinni.Það var víst mesta snjófallið í 28 ár þar til allur snjórinn kom um daginn. Einnig keyrðu foreldrar mínir framhjá tryggingarsvindlinu sem var nefnt í Svartur á leik. Stebbi og bróðir hans voru á leiðinni á Ísafjörð þegar bíll var utanvegar og hálfur fram af hengi, sem þeir hjálpuðu heim til sín. Amma og afi voru að keyra foreldra mína heim úr brúðkaupi um daginn þegar bíllinn þeirra fauk yfir á annan vegarhelming. Heyrðist þau segja 40 metrar á sek. Bilað. Svo fór umræðan meira út í glæpi, glæpamenn og slíka hluti. Deili þeim ekki hérna á blogginu svo fósturpabbinn lendi ekki í vandræðum.


Stebbi fósturpabbi að hrauna yfir Steingrím J. á meðan amma Díana reynir að malda í móinn

Afi Jón og pabbi aðeins hlutlausari í umræðunni

Signhild fósturmamma og mamma afmælisbarn sætar saman

Íris litla systir er búin að skrifa sitt fyrsta handrit af stuttmynd. Hlakka til að lesa það hjá henni. Ánægður með hana að byrja á þessu snemma. Setur pressu á mann að fara að byrja á einhverju svona.

Íris er síðan að fara í prufu fyrir Samfés á fimmtudaginn, kemst því miður ekki þangað en vonandi massar hún þetta. Væri ekki leiðinlegt fyrir hana að komast í Samfés.

Annars þá fékk ég Jón Óla til að taka myndir af vinstra lærinu á mér í dag. Ég og Unnar vorum að læra að taka almennilegt roundhouse kick síðasta föstudag. Settum púða upp að fótunum á okkur og negldum svo eins og við gátum í hvorn annan. Unnar er svona temmilega þroskaheftur í vinstri fætinum eftir að það var keyrt yfir hann á djamminu. Það er reyndar önnur saga. Mögulega þar sem ég á einhverja sök í máli. En útaf þessu gamla atviki þá sparkaði Unnar bara með hægri fæti í vinstra lærið á mér. Er svona að meta hvort ég eigi að kæra Unnar fyrir líkamsárás eða ekki.


Reverse MJ húðsjúkdómur?

Eða hardkó roundhouse frá Unns?

Maður fann auðvitað ekkert af ráði fyrir þessu, en ætli marningurinn safnist ekki saman þegar maður fær svona 100 spörk af fullu afli á sama stað.

Ok shiiiiis.... Pálmar, klifjaður og Sifjaður, var að mæta á svæðið með Def Jam Rapstar Xbox leik. What up? Ný húsmeistarakeppni?

Talandi um þessa mjög svo óvæntu þróun ætla ég að setja hérna inn gamla rappvísu sem Dabbi skrifaði í kommentkerfið mitt eftir að ég dissaði hann. Eiginlega fyndnasta ríma sem ég hef lesið.


Davíð
Óli,
þó svo ég stanslaust þig hugga,
yfir hvað þú saknar Kwame Skugga,
heldurðu alltaf áfram að kvarta,
yfir hvað þú saknar hans dela,
dela hvers? Kwame svarta!
"Hann fílar ekki að kela",
sagði Óli sár,
"Ég sakna hans typpi!"
sagði Óli og felldi tár.

En inn gengu Kiddi og Pálmar,
tveir frægir hommar,
og buðu Óla sína dela,
höfðu greinilega ekkert að fela,
og er þeir renndu niður buxunum,
fylltist hugurinn á óla af skítugum hugsunum,
og er þeir rendu delunum niður kokið
hugsaði Davíð með sér
"Góðu dagsverki lokið"

Yeh yeh yeh 108 REPREZENT!!!
March 29, 2008, 5:50:33 PM GMT
LikeReply
Það var eiginlega bara mega rímnastríð í þessari færslu og kommentunum. Dissaði óvart alla vini mína. Hægt að sjá færsluna hér.

Ætla að kíkja aðeins fram á þennan rappleik.

later