Ég get ekki sagt annað en að þessi jól hafi verið hrikalega fín. Fjölskyldan mín öll á landinu og nánast allir útlandavinirnir komu heim.
Díana systir kom frá London, Jói frá Noregi, Jafet frá Svíþjóð, Bjössi frá Danmörku og Jónas frá London.
Ég er ekki alveg í æfingu í langlokubloggunum þessa dagana. Gerum tilraun.
Ég náði að hitta alla þessa vini og systur mína oftar en einu sinni, sem var mjög gaman. Gott að eiga góða vini. Gaman þegar þeir koma í heimsókn til landsins. Gott að eiga góðar systur líka.
Ég, Kiddi og Jónas duttum í óvænt fyllerí á miðvikudegi fyrir jólin. Þegar ég segi óvænt þá meina ég að sjálfsögðu vænt. Gott að rifja upp útlandatíma þar sem fyllerí á virkum degi var normið. Kiddi og Jónas voru náttúrulega fúlskeggjaðir. Rótin mín var eins og hýjungur við hliðiná þessum mönnum. Við fórum á Pub Quiz þar sem þemað var "stelpudót". Við skitum allhressilega upp á bak en fengum þó bjórverðlaun fyrir "besta nafnið". Nafnið var KKKiddi.
Kiddi var spurður upp á sviði "Hvað stendur KK fyrir?". Kiddi sagði "Karlkyns". Vel fokking gert. Ég hefði eflaust stamað upp nokkrum "Uhh" og drifið mig svo á barinn.
Ég fékk nokkrar góðar jólagjafir, Kindle kannski sú helsta. Á þó ennþá eftir að prófa hann. Fékk líka eina rosa fína gjöf en fyrir misskilning, kortið var rangt merkt svo ég mátti ekki eiga hana.
Ég og Jói spiluðum síðan með Jafetsættinni Game of Thrones spilið á milli jóla og nýárs. Jafet, Aron, Róbert og Ari lifa greinilega eftir Fam over bro's reglunni sem gerði spilið erfitt fyrir mig. Jói náði að sigra sem ég var frekar ánægður með, enda notaði ég mína vonlausu stöðu vanalega til að bakka hann upp.
30. des var gifting hjá Ástralíu-Bjössa og Gabbsternatornum. Ég hef aldrei farið í brúðkaup og þetta var alveg geðveikt. Flott athöfn, geggjaður matur, geggjuð atriði og bara massífur dagur og kvöld. Við steggjuðum Bjössa í sumar á eftirminnilegan hátt og Gaui setti saman helvíti skemmtilegt myndband. Þetta brúðkaup fær mig til þess að giftast einhverjum heppnum manni í kyrrþey seinna meir. Svo gott var þetta. Hamingjuóskir til Bjössa og Gabríelu.
Fyndið hvernig merking jólanna breytist upp úr 20 ára. Gjafirnar verða svo mikið aukaatriði þar sem maður getur vanalega keypt sér það sem maður vill dags daglega. Fjölskyldan er málið. Ég var duglegur á myndavélinni og tók lengsta viðtal sem ég hef tekið við ömmu Sjöfn á gamlárskvöld. Snillingur hún amma.
En það er kannski gott að kíkja á 2011 fyrst ég er kominn af stað.
Ég byrjaði 2011 á því að fá mér vinnu í Íslandsbanka og flytja frá fósturfjölskyldunni yfir í Grafarvoginn til Rúnars og Jóhanns Braga. Í ágúst flutti ég síðan í Vesturbæinn með Pálmari og bý þar enn. Í október hætti ég svo í bankanum og fór aftur í Medis.
Í gamla daga þegar ég hætti í sambandi ákvað ég að tjilla aðeins. Aðallega til að setja báða fætur á jörðina og vita hvert ég stefndi. Átta mig betur á því hver ég væri og hvernig ég fúnkera, svona eins klisjulega og það hljómar. Ætli 2011 hafi ekki verið árið þar sem þetta gerðist af alvöru. Breyttar áherslur í einkalífi, gagnvart fjölskyldu og vinum en aðallega gagnvart sjálfum mér. Get ekki kvartað yfir því, held að jörðin sem ég stend á hafi breyst svolítið mikið til hins betra með breyttum hugsunarhætti.
Ég eignaðist nokkra nýja vini á árinu og styrki tengslin við marga núverandi vini líka. Það er ekki leiðinlegt. Ég vil segja að ég hafi prófað nýja hluti, en dettur ekki margt í hug kannski þegar kemur að afþreyingu. Fór í fyrsta "Íslandsferðalagið" mitt síðan ég var krakki með Bogga í Þórsmörk og síðan Val á Vestfirðina í sumar. Þar voru epic móment eins og dauðanóttin á Breiðuvík, sem endaði þannig að við reykspóluðum af planinu um miðja nótt. Tókum mynd af Dynjanda eftir að hafa verið í Jack Bauer sólarhringnum og enduðum í Mýrarboltanum á Ísafirði. Tóti Hauks reddaði mega aðstöðu þar og við vorum 12 nettir saman að djamma og spila leðjubolta alla helgina. Það var alveg fáránlega gaman og einn af hápunktum ársins.
Ég hlustaði mikið af tónlist eins og oft áður. Þau lög sem hafa fengið mesta spilun og fest sig mest í sessi á árinu er líklega eftirfarandi, í engri sérstakri röð.
Rokk
Þegar ég fæ nýja tölvu þá tek ég alltaf eitt band fyrir sem ég hef ekki hlustað nógu mikið á að mínu mati og hlusta á alla diskana þeirra nokkrum sinnum í gegn. 2006 var það Offspring. Núna voru það Tool og A Perfect Circle. Náðu algjörlega nýrri dýpt hjá mér. Textar, undirspil, frumleiki og söngur allt eins gott og það gerist. Þetta lag finnst mér geðsjúkt, endaparturinn fullnæging fyrir eyrun og textinn ádeila á hugsunarhátt mannsins.
Þetta er formúlurokk, sem er þó enginn galli fyrir mig. Þetta lag er alveg tryllt. Kannski hart að gagnrýna mömmu sína fyrir að leita til guðs eftir að hafa lamast, en það geta allir haft sína skoðun og sökudólga fyrir því sem gerist.
Tók 2 vikna hlustun á Muse í Íslandsbanka með Siggu og Helga Þór vinnufélögum mínum þar. Held ég hafi bara aldrei heyrt þetta lag áður. Virkilega bilað lag. Hef öskrað mig hásann í bílnum oftar en ég get munað. Eitt sessionið endaði með gríðarlegu hóstakasti.
Rapp
Alveg fáránlega gott lag, skiptingarnar klikkaðar og rappararnir world class
Örugglega besti rappdiskurinn í langan tíma og ég bara fæ ekki leið á þessu lagi. Kanye kann að bæta upp opinbera skitu með góðri tónlist.
Lag sem ég vissi af áður. En ætli textagreiningin og skilningurinn hafi ekki komið á þessu ári. Sögulag með boðskap sem er alveg hrikalega gott. Alveg topic í 2 tíma umræðu fyrir þá sem sökkva sér í svona hluti.
Common að dissa West Coast rappið eiginlega. Segjast hafa elskað hip-hop á meðan það var underground og svona. Fín myndlíking í gegnum lagið.
Dubstep
Að setja þetta lag og rigningarhljóð undir er sumtin' special. Mæli með því. Mjög róandi. Dubstep er nokkuð ný stefna fyrir mér og ég er að digga þessi frægustu lög alveg þokkalega. Sum þó betur en önnur.
Mögulega frægasta lag ársins í þessum flokki. Eflaust mikið spilað í bænum, en ég man að sjálfsögðu aldrei hvað gerist þegar ég vakna daginn. Hef ósjaldan dansað fyrir framan spegilinn að bösta múv við þetta lag. P-Man tekið þátt í því oftar en einu sinni.
Önnur lög
Pían að syngja um það þegar hún skellti tilfinningasprengjunni á gaur sem hún var í fjarsambandi við. Endaði ekki nógu vel fyrir hana, en lagið gerði það hinsvegar. Geðveikt lag. Alveg frekar tregafull rödd, smellpassar við lagið.
Kiddi henti þessu á mig einhverntímann. Þetta lag er með geðveikt intro og geðveikt outro. Ég viðurkenni að ég er farinn að spóla svolítið yfir þessar 2-3 mínútur sem eru á milli í dag, en það er nýtilkomið.
Fæ ekki leið á þessu. Viðlagið eiginlega segir frá leitinni endalausu að hamingju. Versin kannski ekki straight to the point, en lagið er bara mjög gott. Þægilegt og auðvelt.
Über jákvætt lag. Geðveikt skemmtilegt. Aldrei þreytt.
Ég las að sjálfsögðu nokkrar bækur líka. Það er engin spurning um það hvaða bók það er sem stendur uppúr 2011. Það er Ender's Game eftir Orson Scott-Card. Fyrsta Sci-fi bókin sem ég les held ég, held ég hafi líka byrjað á toppnum. Þakka Dabba Stóra fyrir að mæla með henni. Temmilega stutt og bara hreint út sagt frábær.
Í sumar prófaði ég nýja íþrótt, skráði mig í Mjölni. Þar lærði ég Jiu Jitsu, Box og Kick-Box upp að einhverju marki. Svona hlutur sem maður hefur hugsað sér að gera öðru hvoru í mörg ár, en aldrei framkvæmt. Fór síðan í 10km hlaup og var meiddur endalaust eftir það, hrikalega dýrt. En nú er ég búinn að skrá mig aftur í Mjölni og við Unnar ætlum að buffa hvorn annan næstu 2 mánuðina. Verður helvíti gott.
Ég náði annars að vera duglegur í ræktinni líka. Fyrst í 2 mánuði með Bjarka þegar 6 pack veðmálið alræmda stóð yfir. Því miður tókst hvorugum okkar að ljúka því verki. Þegar ég stakk upp á að taka það upp aftur í haust þorði Bjarki ekki. Enda skíthræddur við Formann 4. janúarklúbbsins. Jón Óli eða Jötunn-Jón eins og ég vil kalla hann var duglegur að buffa mig upp eftir að ég byrjaði í Medis, auk þess sem ég fór á Nesið á kvöldin öðru hvoru. Desember reyndar byrjaði með veikindum og ég endaði á því að droppa úr 79kg og aftur niður í 75kg. Bömmer. Það kemur aftur. Vonandi bara í vöðvaformi.
Ég var duglegur að rækta áhugamálin. Ég reyndi nokkrum sinnum að æfa mig á gítar. Núna kann ég Come As You Are alveg með Nirvana, en ég kann bara ekki að skipta nógu vel svo ég get ekki spilað það í gegn. A.T.W.A. með System of A Down kann ég líka, en sama málið með skiptingarnar. Svo kann ég smá í Everlong með Foo Fighers og kunni aðeins í Nothin Else Matters með Metallica áður. Það er múr sem maður þarf að komast yfir sem byrjandi, vonandi dettur það inn áður en ég verð gamall. Ég las bækur, hlustaði á tónlist, spilaði borðspil, dansaði fyrir framan spegilinn, stundaði fjölbreytta hreyfingu og byrjaði að skrifa bók en tók svo langa pásu sem varir ennþá. Svo eyddi ég tíma með vinum, minni en fyrri ár, en meiri tíma með fjölskyldu og sjálfum mér.
Ég hef ekki mikið meira í bili. 2011 átti sína góðu og slæmu tíma en ég er mjög ánægður með það í heild og hvar ég stend í dag. Er á góðum stað til að fara upp á við á næstu ár.
Þakklátur fjölskyldu, brahs og öðrum.
later
