Vangaveltur veiks manns

Hver er tilgangur lífsins?

Hver notar rassvasa á gallabuxum?

Afhverju er gull verðmætara heldur en matur?

Hvernig á maður eiginlega að túlka endann á Donnie Darko?


Veikur maður með vangaveltur


Ég er að carb-loada eins og vöðvafjöllin kalla það í dag. Borðaði fyrstu máltíðina klukkan 16 og er með hágæða kolvetnisblöndu í Haribo Mix poka hliðiná mér núna.

Afhverju er svona mikið af froskum og eggjum í Haribo Mix pokum? Það eru miklu fleiri hvít nömm heldur en til dæmis kirsuber. Kirsuberin eru best. Þetta finnst mér vera gild vangavelta. Ég sé ekki fyrir mér að hvíta nammið sé eitthvað ódýrara í framleiðslu heldur en kirsuberin.

Ég horfði á The Girl With the Dragon Tattoo áðan. Fyrstu myndina byggð á bókunum eftir Stieg Larsson. Myndin var 2 og hálfur tími, sem er frekar nice. Svo var hún bara þrusugóð. Núna kemur Hollywood útgáfa af myndinni bráðum með Daniel Craig í aðalhlutverki. Mun hann verða jafn harður og í James Bond eða temmilega soft gaur eins og Mikael Blomkvist í bókunum? Þetta finnst mér líka áhugaverð vangavelta. Það á örugglega eftir að stytta myndina of mikið og hafa Craig of harðan. Það held ég.

Í svona online fantasy leikjum sem tengjast íþróttum er vanalega svona "Watch list" þar sem maður getur fylgst með mönnum sem maður er að íhuga að setja í liðið sitt. Ætli Facebook sé búið að íhuga að bjóða upp á "Stalk list"? Ég veit að vinur minn myndi örugglega nota hann til að halda utan um skotmörkin sín.

Ég átti áhugaverða lottóumræðu um daginn. Næst þegar einhver sem ég þekki kaupir lottómiða er ég að hugsa um að kaupa mér líka lottómiða. En ég ætla að skoða lottómiðann hjá vini mínum og velja nákvæmlega sömu tölur og hann. Sýna honum síðan miðann og sjá hvernig hann bregst við. Yrði maður fúll?

Ætli ég verði orðinn hress fyrir helgina og mun ég verða veikur fram á mánudag? Að vera veikur fram á mánudag er svipað gott tilfelli og komandi jól fyrir vinnandi fólk.

Vangaveltum dagsins er lokið.

later