Handklæðadrama

Ég lenti í alveg ótrúlegu atviki í sundi í kvöld. Þetta gerðist í Laugardalslauginni og ég er alvarlega að íhuga hvort ég eigi að sleppa þeirri sundlaug alfarið í framtíðinni.

Þannig er mál með vexti að eftir góðan fimmtudagsbolta þar sem mitt lið var krýnt Jólameistari 2011 fórum við Hörður í sund. Við fórum að tefla í heita pottinum í mestu makindum. Hörður mátaði mig á hreint út sagt frábæran hátt í fyrri skákinni eftir að ég hafði komið mér í töluvert sterkari stöðu. Ég tók hann síðan örugglega í næstu skák. Svo var klukkan orðin 10 og við náðum ekki að klára næstu skák.

Við röltum því í sturtuklefann þar sem hlutirnir fóru að gerast. Við vorum bara að spjalla í góðu tjilli þegar ekkert gerðist. Það sem gerðist gerðist eftir sturturnar. Við fórum að handklæðastandinum og Hörður byrjaði að þurrka sér með sínu handklæði. Ég fór að leita að mínu handklæði. Fann það ekki. Sá síðan handklæði í sama lit sem var eftir í standinum.

Það voru nokkrir í sturtunum svo að við biðum rólegir og ræddum um það hvort fólk komi í þeim tilgangi í sund, án handklæðis, til þess að græða handklæði. Einnig ræddum við um hvar á siðferðisskalanum maður þyrfti að vera til þess að stela handklæði ef maður hefði gleymt sínu eigin heima.

Síðan kom að því. Síðasti maðurinn labbaði í slow motion úr sturtunni. Öllum að óvörum þá teygði hann sig ofan í töskuna sína og tók upp riffil. Hann leit í kringum sig og...

Nei grín. Hann tók handklæði upp úr töskunni sinni. Það var viss léttir því þá var ég allavega með sárabótahandklæði.

Síðan þegar ég tók handklæðið úr hillunni þá komst ég að því að þetta var mitt eigið handklæði.

Magnað.

later