Klukkan er 5 um nótt. Ég er búinn að vera að reyna að sofna en hefur ekki tekist það. Í of langan tíma hef ég verið að velta því fyrir mér hvað ég myndi gera ef ég myndi vinna í lottó. Þetta er líklega versta "Hvað ef ég myndi vinna í lottó" tilfelli sem ég hef lent í um nokkurt skeið.
Í ljósi þess ákvað ég að gúgla "lottery tragedies" og sjá hvað kæmi upp. Það kom ýmislegt upp. Þar á meðal topp tíu listi sem einhver hafði sett saman af mislukkuðum lottósigurvegurum. Hann er hér.
Fyrsta sætið á þessum lista er frekar hart. $315 milljónir. Rétt rúmir 37 milljarðar íslenskra króna í dag. Ég sé að maður er greinilega ekki að hugsa nógu stórt að velta því fyrir sér hvernig maður ætti að ráðstafa lottóvinningum á bilinu 20-1000 milljónir. Maður gæti gefið 100 nánustu fjölskyldumeðlimum og vinum 200 milljónir á kjaft og samt átt 17 jarða eftir fyrir sjálfan sig í svona stórum. Það myndi kalla á 1-2 vikna launalaust frí í vinnunni yfir jólin. Partý!
Annars þá rakst ég á aðra góða lottósögu. Einhver 86 ára gömul kelling frá Kanada var búin að kaupa lottómiða með ákveðnum tölum. Síðan dreymdi hana tölurnar, lottóvinning og stóra ávísun. Daginn eftir fór hún og keypti sér annan lottómiða með nákvæmlega sömu tölum. Svo líða 2 dagar. BÚMM. Vinnur í lottói. Síðan var önnur manneskja sem var með allar tölurnar réttar svo að gjémla hirðir 2/3 af pottinum, $16 millur af $24 millum. Klók.
Væntanlega vel pirrandi fyrir hinn sigurvegarann að sjá einhverja eldgamla kellingu sem lifir eflaust ekki út árið, sem ofan á það er auðsjáanlega geðveik fyrst hún kaupir 2 miða með sömu tölum, hrifsa af þér 4 milljónir dollara útaf draumi.
En eflaust gaman að vinna 8 milljónir dollara samt. Smá salt í grautinn.
Lokalottósagan er af 73 ára gömlum manni. Hann var nýbúinn að staðfesta sigurmiðann sinn í búðinni "á horninu" og var að rölta þessa 200 metra heim til sín þegar pallbíll keyrir á hann fyrir slysni. Sá gamli var ekkert að tvínóna við hlutina og dó stuttu síðar á spítalanum. Leiðindi.
Það er greinilega ekki alltaf tekið út með sældinni að vinna í lottó.
later
