Ákvað að skrifa strax aftur í þig því ég var að fá góða hugmynd. Hún er...
PÁLMAR TRÉ Í X-MEN!!!!
Það meikar fullkominn sens. Tréð hann Pálmar hefur í raun yfirnáttúrulega hæfileika. Hann getur átt samskipti við tré og alla hluti sem gerðir eru úr tré, hann getur hlaupið á hraða trésins og safnað berki ef hann þrífur sig ekki í langan tíma í einu.
Fólk hefur velt því fyrir sér hvers vegna hann er góður að gera spilagaldra. Þetta er svarið. Hann notar bara spilastokka sem eru gerðir úr tré. Ef einhver reynir að afhenda honum plastspilastokk þá er hann ekki í stuði til þess að gera galdra. Hann er samt búinn að láta mig lofa sér að segja engum þetta svo ég stend við það.
Ég man alltaf eftir því þegar við horfðum saman á Lord of the Rings og vondu kallarnir voru búnir að höggva niður og brenna skóginn. Þá grét hann og mér fannst það svo einkennilegur tímapunktur. En núna þegar ég veit að hann er tré þá skil ég að hann hefur fundið mikla samúð með Ent trjánum sem sáu bræður sína fallna í valinn.
Ég er ekki alveg búinn að útfæra hlutverk hans í X-men því hvorki hann né tré hafa neina mikla hæfileika sem nýtast í baráttunni við vonda liðið. Hann gæti líka verið illt tré en eiginleikarnir eru eiginlega jafn gagnslausir þar. Spurning hvort hann gæti verið trébekkur sem væri hægt að sitja á þegar er verið að íhuga strategíur í stríðinu. Eða breytt sér í blað og blýant þegar einhver fær góða hugmynd sem má ekki gleymast. Svona eins og hugmyndin um að bæta trénu í X-men hópinn. Síðan ef hinir stökkbreyttu gaurarnir fengju leið á honum þá gætu þeir notað hann sem eldivið til að halda á sér hita á ferðalögum.
Það eru eiginlega endalausir möguleikar þó þeir séu kannski ekki að fara að skipta sköpum í því hver endar ofan á í góða og slæma liðinu í X-men. Mögulega gæti hann breytt sér stíflu í á eða stóran trjádrumb í hurð til þess að hindra að einhver kæmist í gegn. Svo ef hann myndi eignast kærustu þá gæti hún fengið X-Men nafnið Tree hugger.
Held að ég vinni betur með þessa hugmynd og sjái hvert það leiðir.
later
