Hvenær er maður orðinn fullorðinn?

Ég var hjá ömmu og afa áðan. Kíkti í óvænta heimsókn og fékk fisk og konfektkassa að launum. Ég og Adrian lentum í óvæntum samræðum um pólitík, evrópusambandið, hitnun jarðar, ísaldir og enduðum á því að horfa á einhverja dansmynd sem heitir held ég Honey 2. Hlutur sem hvarflaði eiginlega ekki að mér að myndi gerast.

Adrian er semsagt frændi minn, við erum systkinabörn. Hann er misþroska eins og litli bróðir hans, sem heitir Róbert, og hefur verið hjá ömmu og afa núna í nokkuð mörg ár, fór í FG á sérdeild, æfði sund og er búinn að vera á verðlaunapöllum á nánast hverju móti, kominn með bílpróf, var með vinnu í ávaxtabílnum og kominn með ábyrgð, opnaði og lokaði bílnum, en missti því miður vinnuna þegar allt starfsfólkið var látið fara. Mig grunaði seint að hann næði því hugsunarstigi sem hann er á núna þegar hann var yngri, ekki með á nótunum og stamaði í hverju orði. Get ekki annað sagt en að ég sé hrikalega stoltur af honum.


Adrian til hægri að taka við viðurkenningu frá Stjörnunni í Garðabæ

Ég man eftir því fyrir 13 og hálfu ári í fermingunni minni að hann labbaði á milli borða þegar fermingunni var að ljúka og var að hjálpa starfsfólkinu að ganga frá. Hann var að smala saman glösum og ákvað að drekka restina af gosinu í öllum glösunum sem hann sótti. Þangað til auðvitað að amma sagði honum stórhneyksluð að hætta þessu á stundinni. Hann er 3 árum yngri en ég og hefur braggast vel.

Það er langt síðan ég skrifaði hérna inn, stundum þarf maður bara að taka pásu. Það er margt búið að vera í gangi. Gott og slæmt eins og gengur og gerist. Síðan í sumar er ég búinn að breyta ýmsu í lífinu. Ég er fluttur frá meisturunum Rúnari og Jóa yfir í Vesturbæinn þar sem við Pálmar leigjum saman íbúðina sem Jafet var að leigja áður. Jafet er farinn til Svíþjóðar í 3 ára nám, hans er sárt saknað að sjálfsögðu. Jói er búinn að koma og fara, tvisvar, Jónas og Bjössi líka og Gísli Glæpur er nýkominn aftur heim með svarta beltið í Mortal Kombat.

Ég, Jói, Jafet og Pálmar í kveðjupartýinu hans Jafets

Ég er hættur í Íslandsbanka og kominn aftur í Medis. Sem ég verð að viðurkenna að ég er alveg að fíla í ræmur. Vinnan er hrikalega skemmtileg, ég þekki vel flesta þar fyrir auk þess sem góðir karakterar eru búnir að bætast í hópinn. Maður á vini í deildinni og þetta lofar góðu upp á framtíðina.

Ég fór á byrjendanámskeið Mjölnis í sumar með Árna Þór vini mínum úr Íslandsbanka. Það leið eiginlega ekki sá dagur sem við vorum ekki að buffa gaura til þess að vinna réttinn á píunum þeirra. Þetta er harður heimur, ekki hægt að segja annað. Fyrir aðra en okkur Árna.

Ég að reyna að taka Árna í gegn
Ég að furða mig á því hvað ég gerði rangt


Ég tók þátt í mínu fyrsta hlaupi síðan ég fór í 3 kílómetra skemmtiskokkið sem krakki. Ég fór varlega í þetta, 10 kílómetra. Hinsvegar spilaði eflaust sú staðreynd inn að ég hafði ekki hlaupið í 3 mánuði fyrir hlaupið, auk þess að ég var í innanhússfótboltaskóm sem voru orðnir of litlir á mig. Ég lenti í hyldýpi fótameiðsla sem ég er að ná mér upp úr fyrst núna. Ég lærði þrennt af þessu.

1. Hlaup eru fyrir fólk sem á hlaupaskó
2. Gott er að undirbúa sig undir hlaup
3. Það er vont að nudda sjálfan sig með korkrúllu

Var frekar ánægður beint eftir hlaupið

Held ég slaki á í hlaupum sem tengjast ekki eltingarleik á eftir fót- eða körfubolta næstu árin.


Um Verzlunarmannahelgina fór gríðarlega góður hópur saman á Ísafjörð í Mýrarboltann. Tóti Hauks, Jói Örn, Svavar Melberg, Valur, Unnar, Nonni, Vignir Ísberg, Kiddi Kosby, Markus, Pontus, Baldur Finns og ég sjálfur. Við skráðum okkur sem Bjarnabófana og gekk bara ekki svo illa. Töpuðum fyrsta leiknum í 3 metra djúpri drullu, gerðum jafntefli í næsta og unnum síðan síðasta.


Ég var þeirrar lukku aðnjótandi að setja einu 2 mörkin sem Bjarnabófarnir skoruðu. Ég var svo uppveðraður eftir fyrsta markið að ég fokkaði öllum áhorfendum þar til ég sá að ég var að senda fjölskyldu með unga krakka puttann.

Skref 1: Koma sér í stöðu og bíða eftir glufu í markinu

Setja hann framhjá markmanninum
Fagna eins og enginn sé morgundagurinn

Þessi verslunarmannahelgi var hrikalega góð og á í raun skilið sína eigin umfjöllun. Ég ætla því ekki að fara nánar út í hana eins og er, en það má þó nefna að við Valur reykspóluðum á planinu hjá Breiðuvík eftir eina verstu nótt lífs okkar, ég og Markus spiluðum tippatennis og gistiheimilið var einn besti tjill og djammstaður sem ég hef kynnst.

Ég og Valur í góðu tjilli í heitri laug
Var alveg frekar smeykur þarna uppi, ein vindkviða og 'att bú'
(Sérðu litla punktinn á bjarginu?)
Valur, Látrabjarg og lundarnir
Gistiaðstaðan sem Tóti reddaði var einstaklega hentug fyrir okkar tilgang
Bjarnabófarnir a.k.a. Beagle Seagul like a boss
Ég, Pontus, Baldur, Tóti, Valur
Unnar, Jói, Markus, Kiddi, Vignir
Svavar, Nonni

Það er margt og meira sem ég get rifjað upp og sagt frá síðan ég skrifaði hérna inn síðast. Ég hef byrjað að hlusta mikið á Tool og A Perfect Circle, sem ég vissi af áður svosem, en komst eiginlega að því að textalega séð er þetta að verða mitt uppáhaldsrokk. Ég fílaði nýju Tinnamyndina í botn. Íris litla systir er með geggjað flotta klippingu. Íris litla systir veit örugglega að verða meira um kvikmyndir en ég, allavega miklu miklu meira um hrollvekjur. Ég spilaði Mortal Kombat í fyrsta skipti og er bara nokkuð fær í honum í dag. Ég tapaði fyrstu NHL leikjunum mínum á Íslandi. Ég byrjaði að skrifa bók. Skrifaði svo ekkert í 2 mánuði og gleymdi henni þar til núna. Gulli er friðsælasti gaur í Risk sem ég þekki. Valur er ófriðsælasti gaur í Risk sem ég þekki. Pálmar vill alltaf sömu heimsálfur og ég í Risk. Kiddi er lengst að gera af þeim sem ég þekki í Risk. Ég eyði of miklum tíma á Facebook. Ég er búinn að eignast nokkra vini. Vinir orðnir betri vinir. Unnar er mjög góður vængmaður. Bjössi hefur verið steggjaður á mjög góðan hátt. Ég er búinn að fá mér Mac og fíla hann mjög vel. Ender's Game er hrikalega góð bók. Ég er orðinn hálf-fastagestur í Vesturbæjarlauginni. Hvorki ég né Bjarki erum með sixpack. Ummálið á bicepnum á Jón Óla eru 44 cm.

Svo áttaði ég mig á því að ef maður fer að sofa fyrir miðnætti verður maður frekar ferskur daginn eftir.

later