Rétt hilla

Hvar er hún eiginlega?

Lífið getur verið flókið.

Það hefur ekki legið vel á mér undanfarið og því hef ég ekki bloggað. En það gengur ekki til lengdar. Ég skulda ennþá fullt af ferðafæslum og þangað til þeim er öllum lokið get ég ekki dregið árar í bát. En þær eru þó ekki á dagskrá í kvöld.

Það er óhætt að segja að NBA hafi tekið óvænta stefnu eftir að ég og Valur ákváðum að fara í Veðmál. San Antonio Spurs tóku sig til og töpuðu einhverjum 7-8 leikjum í röð á meðan Chicago Bulls voru á sigurgöngu. Núna eru 2 leikir eftir á hvort lið í deildinni og Spurs eru efstir, með einn sigur á Bulls menn. Hinsvegar eiga Spurs eftir að spila við Lakers á meðan Bulls á eftir minni spámenn. Svakalegt. Það sem er öruggt er sú staðreynd að Bulls munu ekki þurfa að spila við Miami og Boston, heldur bara annað þeirra. Gefið að þeir sigri Orlando í 2. umferð sem ágætis útlit er fyrir. Ég sá nefnilega Chicago spila áðan, í fyrsta skipti í mörg ár, og það er óhætt að segja að þeir eru komnir með gríðarlega skemmtilegt og hættulegt lið.

Ég verð að vona að Spurs taki Lakers. Ósennilegt en mögulegt. Grunar að Valur eigi eftir að klæðast sigurtreyjunni oftar en einu sinni í mínum félagsskap ef hann vinnur þetta veðmál.

Annars úr lífinu er það að frétta að ég og Bjarki erum ennþá að vinna í magavöðvunum og mér sýnist þetta vera að koma hægt og rólega. En nema ég taki mig stórlega á er 1. júní líklegri komudagsetning heldur en 30. apríl. Það verður bara að hafa það. Fínt að mæta í ræktina og djamma í hófi.

Ég kíkti þó á gott fyllerí með Rekstrarverkfræðinni um daginn, en er enn að melta hvort ég þori að setja myndir og lýsingu af kvöldinu á bloggið. Það var frekar tryllt og gott kvöld. Síðan fór ég á árshátíðina í Íslandsbanka um þarsíðustu helgi. Hún var á Nordica Hótel eða Hótel Hilton, man ekki alveg hvað það kallast í dag. Þetta var standandi árshátíð, sem ég hafði mínar efasemdir með fyrirfram, en það fyrirkomulag er hrikalega fínt. Er mjög ánægður að vera að vinna þarna, góður mórall og skemmtilegt fólk. Það er búið að vera ágætt að still djamminu í hóf líka. Maður kann að meta fylleríin betur ef maður sparar sig aðeins á milli.

Vinnan er farin að verða helvíti fín. Fólkið gott og ég er að komast dýpra í verkefnin. Mikið af verkefnum og enn meira af fundum. Sem betur fer borgar Íslandsbanki fundarlaun.

Fékk góðan tölvupóst í dag frá Össur. Þeir sögðu mér að þeir væru búnir að skoða umsóknina frá mér en þar væri enga vinnu að fá fyrir mig. Ég sótti um hjá þeim fyrir hálfu ári svo ég var ekkert að spæla mig mikið yfir þessu.

1. apríl breyttust opnunartímar í sundlaugum. Aðalbreytingin var kannski um helgar þar sem er bara opið til svona 19 á flestum stöðum. Svo var stytt þessa helstu staði um 30-90 mín. Ég græt þetta frekar mikið þar sem við Bjarki erum búnir að vera að kíkja svona 2-3 sinnum saman í sund í viku, auk þess sem ég hef kíkt í pottinn með Herði Inga eftir bolta öðru hvoru. Ég veit ekki alveg hversu mikið þetta sparar, en þetta breytist vonandi aftur einhverntímann.

Annars þá var mikið vera að pressa á mann að kjósa í Icesave. Sumir vildu að maður segi já og aðrir nei. Ég skoðaði rökin fyrir báðum kostum og var svona mitt á milli eins og flestir. Ég ákvað því bara að reikna út væntigildi út frá fastri krónutölu og slumpaði á útkomuna úr þessum réttarhöldum. Ég veit það svosem ekki betur en næsti maður hvernig þau fara svo ég ákvað bara að gefa ágætis líkur á sigur úr málinu.

Miðað við mitt slump þá var samningur í dag bara fínn kostur, plús að þá myndi óvissan hverfa og fólk gæti farið að skipuleggja fram í tímann. Gera kjarasamninga og svona til lengri tíma. Þannig að ég sagði Já. Ekki að það skipti neinu máli núna. Ef einhver skilur ekki hvað ég gerði í töflunni þá er þetta bara einföld tölfræði, ekkert fancy. Þetta er hægt að nota á t.d. fjárhættuspil:

Segjum að Pálmar vinni 500 þúsund kall á lottómiða. Þegar hann fer að sækja vinninginn segir Jafet lottósali við hann:

"Þú getur annaðhvort fengið 500 þúsund kallinn eða kastað tenging. Ef þú færð 5 eða 6 þá færðu milljón, en ef þú færð lægra færðu ekki neitt"

Tölfræðin virkar þannig að þú átt alltaf að velja þann kost sem hefur hæsta væntigildið. Væntigildið er í þessu tilfelli reiknað svona:

5 og 6 eru 2 útkomur af 6 mögulegum úr teningakasti. 2/6 = 33%

Þ.a. þú hefur 33% líkur á því að vinna milljón og 67% líkur á því að fá ekki neitt.

1.000.000 x 0,33 + 0,67 x 0 = 330.000 krónur

Þar sem væntigildið á teningnum er lægra en 500.000 kallinn sem þú getur fengið tekurðu 500.000 kallinn.

Mínir Icesave reikningar voru í raun bara svona, nema að ég valdi lægstu upphæðina þar sem um skuld er að ræða.

Veit ekki afhverju ég datt í svona dead boring umræðu. Biðst afsökunar á þessu.

Þrátt fyrir reglulega snjókomu finnur maður að sumarið er á leiðinni og það eru góðar fréttir. Ég hef verið að hugsa um að taka 2 vikna ferðalag í kringum landið í sumar, en er ekki alveg búinn að festa það ennþá. Fer líklega bara eftir framboði af ferðafélögum, veðri og kostnaði. Er ekki alveg viss um að ég leggi í þetta einn, en maður sér til.

Ég er spenntur fyrir því að kíkja jafnvel á Hornstrandir og taka svona "Into the Wild" pakka í skamman tíma. Þræða síðan meðfram landinu þegar það á við í ystu útnárana og hafa það á hreinu hvar markverða hluti má finna. Maður gæti jafnvel séð einhver dýr á vappi ef maður fylgist vel með umhverfinu. Það væri ekki amalegt. Hef verið spenntur eftir öll ferðalögin í Indónesíu og Ástralíu að skoða Ísland og gera það almennilega.

Þessi partur af Íslandi er nokkurnveginn óbyggður og vegalaus

Hrikalegt að gægjast þarna fram af

Trúi ekki öðru en það sé massíft að tjilla þarna í smá tíma

Furðulegt hvað það er utan áhugasviðs manns að ferðast um landið þegar maður er svona 15-25 ára gamall. Maður fór alveg hingað og þangað, en vanalega bara á útileigudjömm eða í keppnisferðir með körfuboltanum. Það er svo langt síðan ég var að ferðast með fjölskyldunni að ég hef í raun gleymt flestu sem ég hef séð sem er lengra en klukkutíma frá Reykjavík. Ég er búinn að prenta út kort af Íslandi og hef verið að skoða "Lost in Iceland" bókina sem er truflað flott auk þess sem ég er með Íslands Handbókina á gólfinu í herberginu.

Reikna með að þurfa að undirbúa mig vel ef ég fer í þetta. Kaupa góða skó, redda mér góðri myndavél, tjaldi og jafnvel almennilegum bakpoka. Svo er spurning hvort maður þurfi einhvern extreme síma ef maður ætlar sér í óbyggðirnar á Vestfjörðum. Svona ef það er mikið um ísbirni sem reka á land yfir sumartíman. Ekki viss um að sixpackinn stoppi þá.

Mæli eindregið með að kíkja á þessar myndir og frásögn af ísbjarnarárás sem gerðist einhverntímann í Kanada. Þó ekki fyrir viðkvæma, þetta er eins haardkóóóó og það gerist.

Held nú samt að ég skelli mér í rúmið og gluggi aðeins í "Down Under" bókina eftir Bill Bryson. Ekkert verra en að hugsa með fortíðarþrá til Ástralíu fyrir svefninn. Býður upp á skemmtilega drauma samt. Vona að sumarið verði samkeppnishæft.

later