Veðmál & Magavöðvar

Um daginn fór ég út á land og veiddi hangidýr. Síðan eldaði ég hangikjöt. Daginn eftir setti ég rauðrófu ofan í jörðina. Hún kom hvít upp. Ég gaf Val hana. Hann valdi að gangast ekki við henni svo hann gekk frá henni. Síðan flaug hann í burtu. Ég fílaði hvítrófuna í ræmur. Fílar nýtast vel í nákvæmnisvinnu. Ég ákvað í skyndi að gerast uppgefinn. Svo komst ég ekki aftur niður. Ég var sofandi þegar þyrla þyrlaði upp leikfangaþyrlu sem var undir þyrlu sem ég svaf í á þyrlupalli. Ég beið ekki boðanna sem voru á leiðinni í pósti og fór út á tún. Þar sá ég fisk sem var á þurru landi. Túnfiskur. Ég hitti kláran mann á túninu. Hann var ekki vitlaus. Hann var vitfastur. Hann sagðist vera Prófastur. Hann sagði mér sögu frá því þegar hann læsti sig inni í prófi. Þá var hann próffastur. Það rann á hann kjaftæði. Það sem hann sagði var kjaftæði. Hann talaði hátt. Ég hlustaði lágt. Ég náði honum ekki. Hann náði mér ekki. Ég komst því undan. Dyrum á neðri hæðinni var rétt í þessu lokið upp. Á borðinu er gosdós með lokið niður. Þessu er lokið.

Ég vona að Chelsea skori 5 mörk á United menn á meðan ég skrifa þessa færslu. Hvers vegna er Drogba ekki inná annars? Hvað hefur Torres gert? Hver er núverandi markakóngur deildarinnar? Að sjálfsögðu hinn margslungni refur hann Drogba. En nóg um enska.

Ég og þöngulhausinn hann Bjarki ákváðum að fara í veðmál til þess að hvetja okkur áfram í ræktinni. Hingað til er það að virka mjög hvetjandi. Ég hef mætt í fótbolta eða rækt á hverjum degi í tvær vikur í röð, ekkert djammað og ég vona að þessi dugnaður haldi áfram í tvo mánuði í viðbót.

Ég, Bjarki og Gulli í 'gamla daga' þegar við Bjarki drukkum ennþá bjór

Veðmálið snýst um það að vera kominn með sixpack 30. apríl árið 2011. Sixpackinn verður að vera sjáanlegur og það er leyfilegt að spenna magann. Við höfum ekki alveg ákveðið hvort það verði dómnefnd eða ekki en við erum búnir að taka "fyrir" myndir sem verða sýndar ef ég næ sixpack. Annars verða þær ekki sýndar. Bjarka myndir verða sýndar hvernig sem fer.

Til þess að skjalfesta þetta allt saman þá verða verðlaunin eftirfarandi:


Enginn Sigurvegari

Keppnin mun halda áfram til 1. júní 2011.


Tveir Sigurvegarar

Sigurvegarar munu fara saman í baðstofuna og gera sér glaðan dag.


Einn Sigurvegari

Sigurvegara skal vera boðið í baðstofuna í World Class Laugum af tapara. Taparinn skal borga inn í baðstofuna og splæsa mat og 3 bjórum á sigurvegara.

Sigurvegari mun fá að skrifa þrjá statusa á Facebook taparans undir nafni taparans.

Sigurvegari mun fá að hringja í taparann þrisvar sinnum og biðja hann um að koma að sækja sig í bæinn. Engu máli skiptir hversu margt klukkan er orðin, taparinn mun einfaldlega þurfa að fara á fætur og sækja sigurvegarann. Ef svo fer að tapari og sigurvegari verði ávallt djammandi á sömu tímum þá munu reglurnar breytast 1. september. Þá má sigurvegari hringja í tapara og skipa honum að hitta sig í bænum og láta sig fá pening fyrir leigubíl heim. Upphæðin skal vera rúmlegt fargjald svo hún dugi örugglega heim.

Ég hef í gegnum tíðina ekki verið með nammiþörf. Þegar ég var yngri keypti ég vanalega helling af nammi í fríhöfninni þegar ég kom frá útlöndum en endaði á því að láta vini mína éta það frá mér hægt og rólega. En strax á mánudeginum fyrir viku, degi eftir að veðmálið byrjaði, þá langaði mig hrikalega í nammi. Það er einhver einföld sálfræði á bakvið þetta.

Ég hef aðeins einu sinni verið með sjáanlegan sixpack á ævi minni. Það var minnir mig rétt fyrir jólin 2005. Það varði ekki í langan tíma. Á þeim tíma var ég að lyfta í Sporthúsinu með Jóa og Kidda. Ég var búinn að vera duglegur í einhvern tíma í ræktinni og eitt kvöldið leit ég í spegil og sá að ég var með sixpack í slökun. Ég var endanlega sáttur. Þetta var á fimmtudegi. Ég tók tvöfalda helgi og hef ekki séð hann aftur.

Ég er nokkuð bjartsýnn á það að ég geti náð honum tilbaka. Ég er í tveimur fótboltum í viku, hita upp í 10-20 mínútur fyrir hverja æfingu og hef merkt samviskusamlega hversu margar magaæfingar og bakfettur ég hef tekið hingað til. Einnig er ég að vinna í mataræðinu þar sem hollt fæði er sífellt að koma í stað óhollara fæðis.

Mikilvæg spurning er líklega þessi. Geta hlutir breyst?

Ég er fullviss um það. Því til stuðnings eru næstu tvær myndir.


Einu sinni var ég ekki með hár

En Bjarki var með hár

Við vitum nú flest hvernig það hefur þróast. Þannig að já. Hlutir geta breyst.

Eins og staðan er í dag er Bjarki með 16% fituprósentu og ef ég ætti að giska þá held ég að ég sé með í kringum 10-15%. Ef ég skil þetta rétt þá þarf ég að passa mig að borða aðeins færri hitaeiningar yfir daginn en ég brenni. Þá mun líkaminn ganga á fituforðann. Á sama tíma þarf ég að vera duglegur að hlaupa/brenna og mæta í ræktina. Fólk hefur náttúrulega hundraðþúsundmilljón mismunandi skoðanir á öllum þessum hlutum sem snerta á líkamsrækt, en ég held að þetta sé hlutur sem er bara staðreynd. Fleiri leiðir til þess að lækka fituprósentuna kann ég ekki.

Ég held að Chelsea hafi án gríns skorað 5 mörk á meðan ég skrifaði þessa færslu. Þetta veit ég því Jói er að gera sitt besta til þess að brjóta húsið í sundur á neðri hæðinni á meðan hann spyr einhvern, sem ég veit ekki hver er, hvort hann sé að grínast.

later