NBA Veðmál

Laukrétt kæru gestir. Það eru annað veðmál komið á borðið. Í þetta skipti við stóran fuglmann sem telur að hann viti hvaða lið mun vinna NBA titilinn í ár. Þar er ég honum að sjálfsögðu ósammála. Annað væri mjög einkennilegt í okkar samskiptum.


Þeir sem föttuðu ekki að gera spegil þegar þeir skoðuðu þessa mynd töpuðu fyrir Val í fuck leiknum

En ég og Valur höfum semsagt ákveðið að fara í veðmál sem snýr að okkar liðum í NBA, Chicago Bulls og San Antonio Spurs. Valur trúir í blindni á Bulls á meðan ég er Spurs maður.

Veðmálið snýst einfaldlega um það hvort liðið nær lengra í úrslitakeppninni. Ef bæði lið falla út í sömu umferð sigrar liðið sem kemst í fleiri leiki í lokarimmunni.

Í verðlaun er Swingman NBA treyja sem við munum panta brakandi nýja frá landi tækifæranna. Taparinn borgar treyjuna en sigurvegarinn sendingarkostnaðinn. Treyjan má kosta að hámarki 90 dollara og sigurvegari velur hvaða treyju hann vill fá.

Þar sem mig langar helst ekki í neinn núverandi San Antonio Spurs leikmann á treyju þegar ég vinn þetta veðmál þá hef ég verið að velta því fyrir mér hvern Valur hatar mest.

Lebron James

Svarið er einfalt. Lebron James. Þar af leiðandi mun hann verða fyrir valinu ef ég finn enga góða David Robinson treyju. Valur segist hafa litlar áhyggjur af þessu þar sem hann trúir því að Bulls muni verða meistarar.

Mest væri ég þó til í að finna góða Robinson treyju

Kíkjum aðeins á stöðuna í deildinni, mögulega andstæðinga og vangaveltur tölfræðispekinga.

Leikjauppröðun

Í NBA virkar úrslitakeppnin þannig að hún er útsláttarkeppni fyrir 8 efstu lið hvors riðils og leikjauppröðun er eftirfarandi:

Myndin er frá 2010

Samkvæmt þessari uppröðun þá lendir liðið sem vinnur sína deild á móti 8. sæti deildarinnar og lendir síðan á móti liðunum sem voru í 4.-5. sæti, o.s.frv.


Staðan í deildunum

San Antonio trónir öruggt á toppi Villta Vestursins


Á meðan Chicago er í harðri rimmu við Boston og Miami í toppslag Austursins

Það eru ennþá 16 leikir eftir í deildinni, sem geta breytt miklu. En það verður að teljast líklegt að Spurs taki vestrið og að Chicago haldi sér í efstu 3 sætunum í austrinu. Það hinsvegar skiptir töluvert meira máli fyrir Chicago, að mínu mati, að lenda í efstu 2 sætunum heldur en í sæti númer þrjú. Mun útskýra það hér að neðan.

Tölfræðisérfræðingar

NBA spekingar eru auðvitað alltaf með puttann á púlsinum þegar kemur að tölfræði og Valur sýndi mér síðu í gær sem reiknaði út úrslitaviðureign og sigurvegara, miðað við núverandi stöðu í deildinni.

Það eru 39,4% líkur á því að Bulls komist alla leið í úrslit og 21,6% líkur á því að þeir verði meistarar.

Það eru 24,6% líkur á því að Spurs komist alla leið í úrslit og 13,3% líkur á því að þeir verði meistarar.

Lakers eru líklegastir að mati spekinga eins og er, með 22,4% líkur. En næst á eftir koma Bulls og Spursararnir. Nánari útskýringar á þessari ört breytilegu tölfræði má finna hér.


Mögulegir Andstæðingar

Ég geri ráð fyrir að bæði Spurs og Bulls komist bæði áfram í aðra umferð, þó Valur sé harður á því að mínir menn í Spurs detti út strax á móti Memphis Grizzlies, eða því liði sem vermir botnsætið þegar deildin klárast. En kíkjum aðeins á þetta.

San Antonio Spurs

Hér má sjá Tony Parker, Tim Duncan og Ginobili missa af Steve Nash

Spurs endar í efsta sæti svo ég ætla ekkert að ræða aðra möguleika. Miðað við núverandi stöðu í deildinni þá setja þeir bjarnarkjöt á samlokuna sína í 2-3 vikur eftir að hafa misþyrmt Memphis Grizzlies í fyrstu umferð.

Í næstu umferð mæta þeir síðan sigurvegara Oklahoma Thunder og Denver Nuggets. Þar sem Denver eru vængbrotnir án Carmelo Anthony hef ég enga trú á því að þeir hafi það í sér að sigra Oklahoma með Durant í fararbroddi. Í einvígi á milli Spurs og Oklahoma tel ég að Spurs taki þá á stöðugleikanum og reynslunni. Oklahoma er hinsvegar ákveðið wildcard þar sem foringinn Durant er hrikalega mikið efni og búinn að vera stigahæstur í deildinni síðustu 2 ár. En allavega, eftir mikið rúst mun Spurs komast áfram.

Þá vandast málin. Þá taka þeir á móti Lakers, sem gerði sér lítið fyrir og rústaði bæði Portland og Dallas í samtals 8 leikjum. Til þess að vera raunsær þá er hægt að nefna að Lakers eru núverandi meistarar og með hrikalega góða leikmenn. Þeir eru viljandi búnir að vera að hvíla Kobe alltaf þegar þeir geta og eru með hrikalegt lið. Auðvitað rústar San Antonio þeim í 7 leikjum, ég segi það ekki. En það eru ákveðin áhætta komin í spilið á þessu stigi. Versta niðurstaðan væri 4-1 fyrir Lakers, sem vonandi gerist ekki. Hinsvegar þarf ég ekki að greina þetta frekar, þar sem Bulls mun ekki ná svona langt sín megin.

Augljósir veikleikar San Antonio Spurs eru þeir að bensíntankurinn hjá núverandi liði hlýtur að vera að fara að klárast. Síðustu ár hefur vantað allt hungur í þá, sérstaklega í úrslitakeppninni. Á þessu tímabili hafa þeir verið að spila mikið á breiddinni, sem er mjög góð hjá þeim. Leikmenn í liðinu hafa unnið úrslitakeppnina áður svo að reynsluna skortir ekki. En ég er hræddur um að þá skorti samt leikmann sem getur tekið leikinn í sínar hendur alltaf þegar þess þarf.

En snúum okkur að bulls.

Chicago Bulls

Svona myndir minna mann bara á körfuboltamyndir og gömlu góðu tímana

Að halda með Chicago Bulls er svipað og að halda með Liverpool. Liðið er búið að vera í mikilli lægð síðustu 10 ár líklega og áhangendur þess lifa á fornri frægð þess tíma þegar Jordan, Pippen, Horace Grant og Rodman að ógleymdum Einnar-Körfu-John Paxtons klæddust rauðu treyjunni. Hinsvegar þá hefur gengið verið að batna og Bulls komnir með leikmanninn sem Liverpool taldi sig hafa í Torres. Uppáhaldið þeirra Vals og Kidda hann Derek Rose verður að teljast einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Fyrir utan hann eru þeir með Joakim Noah og Carlos Boozer sem einnig eru gríðarlega góðir. Ég þekki lítið til Bulls fyrir utan þessa þrjá, en þess má geta að þeir hafa sjaldnast verið heilir á sama tíma á þessu leiktímabili og staða þeirra í deildinni undirstrikar kannski hversu gott lið Bulls er komið með. En þeir eru ekki eina liðið sem hefur styrkt sig í austrinu.

Ef Bulls endar í 1. sæti munu þeir byrja á því að valta yfir Charlotte, sem hefur ekkert til brunns að bera nema Chris Paul, sem færir sig eflaust um set áður en langt um líður (Leiðrétting: Chris Paul er auðvitað í New Orleans Hornets - mikill feill af minni hálfu). Næst munu Bulls fá í heimsókn sigurvegarann úr Orlando - Atlanta. Það eru bara 2 ár síðan Orlando spilaði til úrslita svo að ég tel að súpermaðurinn Dwight Howard og Orlando mæti nautunum í þessari viðureign. Þessari viðuregin getur Bulls hæglega tapað. En segjum að Bulls komist alla leið í úrslit austursins. Þá erum við að tala um að þeir mæti annaðhvort Boston Celtics eða Miami Heat. Hérna er Bulls að fara að tapa. Boston kallarnir eru kannski á síðasta snúning, en þeir eru með rísandi stjörnur, sérstaklega Rajon Rondo. Miami Heat eru síðan kannski ekki búnir að smella fullkomlega saman, en ég tel að Lebron James, Dwayne Wade og Chris Bosh séu jafnvel að fara alla leið í úrslitin þetta árið.

Ef Bulls endar í 2. sæti munu þeir lenda á móti Miami eða Boston strax í annarri umferð. Ef þeir enda í 3. sæti munu þeir síðan hugsanlega lenda á móti New York í 1. umferð, sem er orðið nokkuð sterkt lið eftir komu Amare Stoudemire og Carmelo Anthony. Ég myndi halda að New York séu orðnir nokkuð skeinuhættir og liðið verður að teljast vera ákveðið wild card í austrinu eftir að karmelan bættist í hópinn. Ef þeir ynnu NY myndu bulls lenda á móti Miami eða Boston í annarri umferð.

Eins og ég sé þetta þá geta toppliðin í austurdeildinni orðið stór hindrun fyrir Bulls. Á meðan Spurs þarf aðallega að hafa áhyggjur af Lakers EÐA Dallas þá eru allar líkur á því að Bulls lendi í því að þurfa að vinna bæði Orlando OG Miami eða Boston. Í versta falli þrjú ef þeir fá Knicks í fyrstu umferð. Þetta myndi örugglega skila sér í þreytu hjá liðsmönnum Bulls sem vonandi yrði til þess að þeim yrði slátrað sem fyrst.

Rose er rísandi stjarna

Að mínu mati býr Bulls hinsvegar yfir gríðarlegum styrkleika. Þeir eru með ungt og ferskt lið og eru virkilega hungraðir í úrslitakeppninni. Áttu líklega eina skemmtilegustu rimmu fyrr og síðar fyrir 2 árum þegar þeir töpuðu fyrir Boston í 7 leikjum, þar sem einn leikurinn var þríframlengdur. Síðan eru þeir auðvitað komnir með mikinn liðsstyrk í Boozer sem gæti reynst dýrmætur ef þeir ná að halda lykilmönnum meiðslalausum þegar úrslitin byrja.

Líkleg Niðurstaða

Líklegasta niðurstaðan í þessu öllu er sú að Lakers vinni Spurs í 6 leikjum í vestrinu á meðan Chicago endar í 2. sæti í austrinu og lendir þar af leiðandi á móti Miami Heat í annarri umferð þar sem þeir tapa í 6 leikjum. Dwayne Wade mun gera út um þetta einvígi, enda mun ég klæðast treyjunni minni á meðan á því stendur.

Þetta gerir það að verkum að Valur mun tapa fyrir mér líkt og í öllu öðru og ég mun klæðast nýrri NBA treyju í byrjun sumars.

NBA Fantasy deildin verður að sjálfsögðu á sínum stað þegar úrslitakeppnin byrjar svo að nóg er nú hægt að veðja í kringum NBA.

Ef þið hafið skoðun á þessum málum hvet ég ykkur eindregið til þess að brydda upp á umræðu hérna í kommentunum. Held það séu hvergi jafn fjölbreyttir aðdáendur liða og þegar kemur að NBA.

Þess má geta að myndirnar í færslunni voru í boði Vals.

later